Hún er þriggja ára í dag.

Já hún Ragna Björk á þriggja ára afmæli í dag. Amma óskar henni innilega til hamingju með afmælið og allrar blessunar í framtíðinni. Vitanlega fer svo amma í afmælisveisluna hennar um næstu helgi og hlakkar mikið til.  Ragna Björk er svo skýr og skemmtileg stelpa og alltaf  gaman að hitta hana. 

Á myndinni hérna fyrir neðan er hún með Herbert, kálhausadúkkuna sem mamma hennar fékk líklega þegar hún var á þessum aldri.  Herbert hefur verið góður förunautur og ber aldurinn vel því hann er kominn langt á þrítugsaldurinn.  Þau Ragna Björk hafa alltaf verið góðir vinir og frá fyrstu tíð tók Sigurrós myndir af henni með Herbert til þess að sjá stærðarmuninn. Það leið nú ekki á löngu þar til Ragna Björk var komin langt fram úr honum í stærð.

Til hamingju litla nafna mín.

rbj3.jpg
This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

5 Responses to Hún er þriggja ára í dag.

  1. Katla says:

    Til hamingju með nöfnu þína!

  2. þórunn says:

    Afmælisbarn
    Innilegar hamingjuóskir frá okkur í Kotinu.

  3. Til hamingju með þessa fallegu hnátu Ragna mín með kærri kveðju í bæinn.

  4. Katrín says:

    Mig langaði bara að þakka fyrir góða uppskrift af Hjónabandssælu – er að baka hana í annað skipti núna og finnst hún agalega góð. Ætla að prófa fleiri uppskriftir frá þér við tækifæri.
    Takk fyrir mig 🙂

  5. Ragna says:

    Gott að þér líkar hjónabandssælan Katrín. vertu velkomin hingað hvenær sem þú vilt.

Skildu eftir svar