Hvílík vika.

Ég er nú búin að vera svo lasin þessa viku að ég hef bara ekki haft krafta til þess að setja neitt inn á dagbókina mína.


Ég ætla nú að stytta söguna verulega en ég er búin að vera að drepast í höfuðverk og ógleði með uppköstum síðan á miðvikudagsmorgun. Ég veit ekki hvað ég er búin að taka margar Panodil og ógleðistíla. Búin að vera lögð inn á sjúkrahúsið yfir nótt og fram á næsta dag. Er ennþá í hálfum gír og bíð eftir að vera kölluð í bæinn í myndatöku. Er með skásta móti í dag. Prufaði að hafa hálskraga því læknarnir halda kannski að þetta sé út af hálsliðunum. Þeir eru alla vega vissir um að þetta er ekki einhver pest.  Ég á nú að koma upp á spítala á morgun. Fróðlegt að vita hvað kemur út úr því.


 


 


 


 

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Hvílík vika.

  1. afi says:

    Gangi þér vel.
    Æ, æ skelfing er að heyra þetta.
    Við skulum vona að „þeir“ finni fljótt hvað amar að, svo þú verðir full frísk og galvösk innan tíðar.
    Gangi þér vel.

Skildu eftir svar