Börnin sjá hlutina í öðru ljósi.

Ég gleymdi að birta eftirfarandi færslu um það sem gerðist á laugardagsmorgni  fyrir nokkru síðan


Oddur Vilberg var hjá mér þennan morgun og við skruppum m.a. út í Nóatún. Á leiðinni til baka þá komum við að gatnamótunum við Kirkjuveginn en þar stöðvaði lögreglan umferðina því líkfylgd var að koma frá kirkjunni. Ég spurði stubbinn minn hvort hann vissi hvað lögreglan væri að gera. Hún væri að stöðva bílana svo líkbíllinn og fólkið sem hefði verið í kirkjunni kæmist út á Eyrarveginn.


„Nei amma, hún er að fanga bófann sem drap þennan sem er í kistunni og hún ætlar með hann í fangelsið“


Ég neita því ekki að ömmu hálfbrá við þessa skýringu. 

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

Skildu eftir svar