Síminn – framhald.

Ég vil bara segja ykkur að þeir hjá Símanum eru búnir að skipta út hjá sér „sætinu“ sem tengingin mín fer í hjá Símanum og ég er alveg hætt að detta út, þ.e.a.s. í tölvunni 🙂 


Ég fór fram á einhverjar skaðabætur fyrir alla vinnuna sem búið er að leggja í þetta á mínu heimili algjörlega að nauðsynjalausu og Þeir eru að íhuga þá ósk mína. Ég fór nú ekki fram á meira en að fá eins og mánaðaráskrift fría en auðvitað er það allt of lítið miðað við það sem ég hefði þurft að borga ef ég hefði keypt alla vinnuna. Alls ekki þeim að þakka að ég á svona góða að sem ég hef verið að níðast á.  Ég hefði átt að vera djarfari í kröfugerð minni. Best að sjá hvað verður.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Síminn – framhald.

  1. Jói says:

    Ekki hika
    við að halda í punginn á þeim og heimta eitthvað.

    Algjört klikk þeirra megin og handvömm.

Skildu eftir svar