JÓLAKVEÐJAN MÍN TIL YKKAR ALLRA KÆRU V INIR.

 


Kæru vinir!


Þá styttist óðum í blessuð jólin. Nú fer kyrrðin að færast yfir og gott að setjast niður við kertaljós og hlusta á einhvern af þessum fallegu jóladiskum sem við dustum rykið af jól eftir jól.  Ég var að klára að pakka inn jólagjöfunum í kvöld og að því loknu var ósköp notalegt að setjast niður við kertaljós,  kakóbolla og smákökur og hlusta á jóladisk sem þau syngja systkinin Ellý og Vilhjálmur – Takk Sigurrós mín fyrir þennan disk, hann er alveg yndislegur.


Svo reikaði meðal annars hugurinn til ykkar vina minna á netinu, svo ég mátti til með að senda ykkur góðar óskir í tilefni hátíðarinnar.


Megið þið öll njóta


FRIÐAR OG GLEÐI UM JÓLIN


Kær kveðja,


Ragna


This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

3 Responses to JÓLAKVEÐJAN MÍN TIL YKKAR ALLRA KÆRU V INIR.

  1. afi says:

    Jólakveðja
    Þetta er falleg jólamynd.
    afi vill nota tækifærið og óska þér gleðiríkra jóla og gæfu á komandi ári.

  2. Þórunn says:

    Gleðileg jól
    Þakka þér fyrir fallega kveðju og einstaklega jólalega mynd, ég sendi þessar góðu óskir til þín aftur,
    Þórunn

  3. Jólaóskir!
    Sæl Ragna mín! Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár! Farðu vel með þig!!! Takk fyrir heimsóknirnar á bloggið mitt en ekki síður fyrir öll skemmtilegu skrifin þín hér!!!

Skildu eftir svar