Svona var Selfoss í dag.

Í yndislega veðrinu í morgun kom bara eitt til greina þegar við vorum að spá i hvað við ættum að gera fyrir hádegið.


AÐ FARA Í GÖNGUTÚR.  Ég hafði sem betur fer myndavélina með mér og hér er árangurinn.


Eftir hádegið bónaði Haukur bílana og  ég fór í vatnsleikfimina.


Eftir góðan kvöldmat ákvað Haukur svo að fara í bæinn því spáin fyrir morgundaginn er leiðinleg og hann á að byrja að vinna annað kvöld svo það var alveg eins gott að fara bara í kvöld.
Hann hringdi áðan og sagði að það hefði verið einstaklega fallegt að aka yfir Hellisheiðina því Norðurljósin skreyttu bókstaflega allt loftið.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

Skildu eftir svar