Afmælisbörn og góðar stundir.

Hún Dana María, afastelpan hans Hauks er orðin 18 ára, en hún á afmæli í dag. Við óskum henni hjartanlega til hamingju.


Svo vorum við í afmælinu hans Sigþórs í dag, en hann átti afmæli þann 5. júní en það varð að fresta því af því Sólrún María, litla systir hans var svo lasin. Í dag voru þau hinsvegar frísk og glöð. Veisluföngin voru sko ekki af verri endanum í afmælisveislunni í dag og ég þakka fyrir mig og mína. Hér er mynd af þeim saman Sigþóri og Sólrúnu Maríu.

Sigurrós er búin að vera fyrir austan síðan á föstudag að stússa í ýmsu fyrir brúðkaupið í næsta mánuði. Við mæðgurnar þrjár horfðum saman á gamaldags enska bíómynd á föstudagskvöldið en í gærkvöldi fórum við héðan í Grundartjörnina og borðuðum öll saman grillmat þar.

Ég þakka bara öllum sem hafa gert mér þessa helgi svo skemmtilega.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Afmælisbörn og góðar stundir.

  1. Þórunn says:

    Hamingjuóskir
    Innilega til hamingju með þessi fallegu afmælisbörn. Það er gaman að fá að sjá þau, þið hafið greinilega átt góða helgi.
    Bestu kveðjur frá Austurkoti

Skildu eftir svar