Hún á afmæli í dag ………

Hún á afmæli hún Sigurrós, hún á afmæli í dag.

Það eru orðin 26 ár síðan við Sigurrós litum hvor aðra fyrst augum á Fæðingardeildinni og vel hefur ræst úr litla krílinu sem ég hélt á í fanginu þann 19. júlí 1979 og auðvitað er mamma montin af stelpunni sinni.
Nú spókar hún sig í Frakklandi í brúðkaupsferð með honum Jóa sínum og samkvæmt nýjustu fréttum njóta þau lífsins til hins ítrasta.
Við hérna á Selfossi sendum henni okkar allra bestu afmæliskveðjur og auðvitað óskum við Jóa líka til hamingju með konuna sína.
Við hlökkum mikið til að fá þau heim og heyra ferðasöguna og skoða myndir.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

Skildu eftir svar