Mikið er alltaf gaman þegar einhver bankar óvænt uppá hjá manni. Ég sakna þess svo hvað fólk er hætt að þora að koma í heimsóknir nema því sé sérstaklega boðið.
Ég var því mjög ánægð í morgun þegar dyrabjallan hringdi og hún Ásta sem er með mér í vatnsleikfiminni kom í heimsókn. Ásta kenndi mér á nýju saumavélina í haust og nú var hún svo sæt að að koma og bjóða mér snið af galla svo ég geti saumað á hann litla nafna minn. Við drukkum saman kaffi í eldhúsinu og spjölluðum í tvo klukkutíma.