Dapur dagur.

Dagurinn í dag hefur verið dapurlegur. Það er svona í lífinu að það skiptast á skin og skúrir. Dagurinn í gær svona frábær en dagurinn í dag ekki. Ég fékk þær fréttir að Dússý systir væri mjög veik. Hún er á gjörgæslu á sjúkrahúsinu í Rönne og lítil von um bata. Rut ákvað upp úr hádegi í dag að fara út og komst á flugið klukkan fjögur. Hún verður þó ekki komin til Bornholm fyrr en seint í kvöld.  Það er erfitt að vera þetta langt í burtu og bíða bara eftir fréttum þegar svona stendur á en það er bara að sætta sig við það.


Ég held ég verði að láta aðrar færslur í dagbókina mína bíða eitthvað.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

Skildu eftir svar