Gaman, gaman

Það stendur mikið til hjá mér um helgina þegar við stelpurnar í saumaklúbbnum (ég er sko yngst)  förum saman til einnar í sumarbústað og ætlum að gista. Vonandi eru engir bústaðir mjög nálægt því þá þyrfti að vara fólk við svo það geti verið búið að útvega sér eyrnatappa.

Það eru líklega ein 10 ár síðan við fórum síðast saman í bústað og þá var mikið, mikið fjör.

Haukur verður að hafa ofan af fyrir sér hérna heima á meðan ég verð í burtu því karlmönnum er stranglega bannaður aðgangur – ekki það, að ég veit að þeir eru örugglega mjög sáttir að fá  að vera heima  þar sem þeir geta sjálfir stjórnað hávaðanum í kringum sig – með okkur allar nálægt væri það ekki hægt.  

Æ, ég ætla að setja hérna eina mynd af honum nafna mínum  (þó hann hafi verið búinn að slefa sig allan út) en hann var svo lukkulegur með afmælisblöðrurnar hans bróður síns.

Svo óska ég ykkur öllum

Góðrar helgar

nafnibl.jpg 

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Gaman, gaman

  1. Svanfríður says:

    Jibbí-þú ert að fara að „djamma“ með hinum skvísunum! Góða skemmtun, talið mikið og hátt og njótið ykkar en það þarf auðvitað ekkert að segja ykkur það.

Skildu eftir svar