Mikið er nú yndislegt að fá snjóinn. Þetta get ég sagt núna þegar búið er að moka svo fínt götuna hjá okkur og ekki bara hjá okkur heldur um allan bæ.
Svona leit út á pallinum hjá mér á sunnudaginn.
Við Haukur skruppum svo í bíltúr í dag, rétt um sólsetur, og fórum á Eyrarbakka og Stokkseyri svo ég gæti tekið myndir. Sólarlagið varð nú ekki eins fallegt og ég bjóst við en ég náði samt nokkrum myndum af snjó og sjó.
Þessi er tekin á Stokkseyri.
Hestar í ljósaskiptunum og Ingólfsfjall í baksýn.
Já, tilveran er dásamleg þegar maður er útsofinn og veðrið svona fallegt.
Fallegar myndir
Sæl Ragna !
Það er alltaf svo mikil fegurð í blogginu þínu! Ekki bara þegar það er skreytt fallegum myndum, líka öll hin, meira segja í síðasta bloggi þar sem þú talar um gigtina!
Takk fyrir falleg orð á minni síðu og verði þér bara að góðu!
Þinn bloggvinur Jólanta
Sæl aftur!
Svo ég skýri mál mitt betur með fegurðina, þá er það allt þakklætið til lífsins sem gerir bloggið svo fallegt.
Kær kveðja Jólanta
Einhverra hluta vegna, hlýjar það mér og hefur alltaf gert, að sjá hrossin í vetrarbúningnum. Í raun ætti sú sýn ekki að hlýja mér-frekar kæla:) En svona er það nú.
Mikil fegurð
Þessar myndir eru alveg frábærar og sýna svo vel hvað landið getur verið fallegt og bjart eftir dimma vetrardaga. Bestu kveðjur frá okkur í Austurkoti
Satt segirðu, það er mikill munur að hafa mjöllina. Allt svo hreint og fínt. Og fallegar eru myndirnar þínar. Þær bregðast aldrei.
Ofsalega fallegar myndir Ragna.. Snjórinn er jafnfallegur og hann getur verið hættulegur..
Myndirnar
Blessuð Didda mín, gat bara ekki orða bundist, rétt kíkti inn á hjá þér og finnst myndirnar þínar afskaplega fallegar.