Að ná sér niður.

Ég er svo gjörsamlega að fara á taugum yfir því að horfa á leik Íslendinga og Dana að ég bara varð að skríða í tölvuskápinn og  þori ekki að kíkja fram næstu mínúturnar. 

Þó ég sé ein heima þá æsi ég mig hvílíkt þegar ég horfi á svona leiki að það er bara stórhættulegt.  Ég heyri enn að það eru hróp og köll svo líklega verð ég að leggja einn kapal svona til að ná mér aðeins niður.  Ég kveð ykkur í bili og vonandi lifi ég það af að heyra í ykkur síðar.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

2 Responses to Að ná sér niður.

  1. Svanfríður says:

    Nú vitna ég í áramótaskaup frá árinu 1983 og spyr: ertu dauð…ég endurtek, ertu dauð?

  2. Ragna says:

    Munaði mjóu.
    Já það munaði sko mjóu og ég veit ekki hvað hefði gerst ef ég hefði ekki hreinlega forðað mér í tíma.

Skildu eftir svar