Þroskasaga frá Sivvu.

Ég má til með að birta í heild þessa lesningu sem ég fékk í tölvupósti í morgun frá henni Sivvu Avon lady. Mér finnst hún mjög góð.(Já bæði Sivva og sagan)

————

 

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna.  Ég þurfti aldrei að halda maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól.


En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis.  Og

um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg efni.


Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft

niður undir hné.


En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu

dimmt virðist yfir öllu í dag.  Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri dagur.


Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við

þessum þremur hlutum

   1.    Rigningardegi

   2.    Týndum farangri

   3.    Flæktu jólatrésskrauti


Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.


Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama og að skapa sér líf.


Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.


Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska á báðum höndum.  Öðru hvoru verðu maður líka að gefa boltann til baka.


Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.


Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.


Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina.  Allir

þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.


Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.


Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir

ekki hvernig þú lætur því líða.


Sendu þessa orðsendingu til annarra. Þú hefur þá í það minnsta sagt öðrum konum að þér finnst þær frábærar, og kannski færðu þær til að brosa.

——-

Eruð þið ekki sammála mér að þetta sé fín lesning?  Takk Sivva mín.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Þroskasaga frá Sivvu.

  1. SAMMÁLA!
    Já, þetta er holl og góð lesning!

Skildu eftir svar