Ég hef ákveðið að taka mér bloggpásu og skoða ekki heimasíðuna mína eða setja neitt inná hana þangað til í byrjun marz. Ágætt að fara í pásu öðru hvoru og hvíla sig á tölvunni.
Geymið að setja gullkornin ykkar í orðabelginn þar til tölvan verður opnuð aftur og vonandi verður þá eitthvað fréttnæmt sem hægt verður að tjá sig um. Senn líður að flutningum og fleiru.
Bið að heilsa ykkur í bili kæru bloggvinir heyrumst seinna. Nú slekk ég á henni vinkonu minni og set punkt.