Já hann stækkar og stækkar

ömmustubburinn minn hann Oddur Vilberg og í dag er hann níu ára. Nú getur amma hvenær sem er búist við að fá tilkynningu frá honum um það að nú sé mál að hætta að kalla hann ömmustubb. Við gerðum nefnilega fyrir nokkrum árum samkomulag um að amma mætti og ætti að nota þetta gælunafn þangað til hún fengi tilkynningu um annað. Þegar þar að kemur mun svo amma auðvitað halda áfram að kalla hann þetta í hjarta sínu,  en kannski ekki upphátt eins og verið hefur.

Til hamingju með afmælið elsku Oddur minn
og skemmtu þér vel um helgina.

img_7513.jpg

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

3 Responses to Já hann stækkar og stækkar

  1. Hulla says:

    Til hamingju
    Innilega til hamingju med ømmu stubb.
    Hann er svoo fallegur tessi snádi.
    Knús til ykkar

  2. Katla says:

    Það er ekkert víst hann muni nokkru sinni biðja ömmu um að kalla sig neitt annað en ömmustubb – til hamingju með hann: )

  3. til hamingju
    með þennan fallega ömmustubb. Kær kveðja í bæinn.

Skildu eftir svar