Smá innlegg.

Það er margt sem rekur á fjörur manns í tölvupósti þessa dagana. Flest miðar að því að létta okkur lífið í því ástandi sem er í þjóðfélaginu í dag. Margt hef ég áframsent á vini mína en margir eru á móti því að það rigni endalaus áframsendur póstur yfir þá svo ég er nú að reyna að takmarka slíkt.

Þessa vísu sendi ein vinkona mín áðan og ég ákvað að leyfa henni að fá pláss hér. 

 Hugarvíl og harmur dvín,
er horfi ég á frúna.      
Hún er eina eignin mín   
Sem ekki rýrnar núna.  

(Nafn höfundar fylgdi ekki með).

Njótum vel helgarinnar og hugsum jákvætt
og ekki gleyma að knúsa hvert annað.

elskadur.jpg

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

3 Responses to Smá innlegg.

  1. Katla says:

    Myndin segir allt sem segja þarf – vísan góð. Eigðu góða helgi kæra Ragna: )

  2. Knús til baka, og góða helgi.

  3. Magnús á Ak. says:

    Hreint frábær vísa og gaman væri að heyra og sjá fleiri svona. Takk fyrir.

Skildu eftir svar