Fyrir 12 árum.

Í dag eru 12 ár frá því að mér hlotnaðist sú gleði og heiður að verða amma í fyrsta sinn.  Ég er auðvitað montin af ömmustelpunni minni henni Karlottu því hún er svo efnileg stúlka sem stendur sig vel í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Það er talsverður áfangi að verða 12 ára, a.m.k. fannst mér það á sínum tíma. 
Sú litla vildi eiga sinn eigin afmælisdag, þess vegna beið hún ekki þangað til daginn eftir þegar mamma hennar átti afmæli.

Innilega til hamingju Karlotta mín með afmælið í dag og Guðbjörg með afmælið á morgun.  Svo verður bara stórveisla á laugardaginn því Ragnar Fannberg litli bróðir sem á afmæli 26. marz  heldur sína veislu með ykkur svo það verður bara þreföld veisla.  Oh hvað amma hlakkar til að koma til ykkar.  

 

karlotta12ara.jpg

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Fyrir 12 árum.

  1. Katla says:

    Til hamingju með þessa myndarstúlku!

Skildu eftir svar