Ragna Kristín Jónsdóttir




 

Það hafa 73 skrifað í gestabókina

23. apríl 2006
Bjarki Már Magnússon - hello
sæl Ragna og takk fyrir síðast. Það var nú gott og gaman að vera hjá þér um helgina sem ég gisti hjá Þér.. bless bless og sjáumst síðar

23. mars 2006
Eva Örnólfsd. - Kveðjur og þakkir
Sæl Ragna og takk fyrir allar uppskriftirnar. Ég er ekki mikið fyrir að vera í eldhúsinu og því er það helst að ég prenti út uppskriftirnar og hafi þær á eldhúsborðinu í von um að það kvikni hjá mér löngun till þess að gera eitthvað fyrir mitt heimafólk. Þannig var það með óbökuðu Fjólukökuna, ég fékk vatn í munninn og er staðráðin í að reyna við hana. Bestu þakkir fyrir hana og góðar kveðjur á bloggsíðunni minni sem ég er ekki nógu dugleg við. Bestu kveðjur Eva Stefumamma

13. febrúar 2006
Stefa - Bestu kveðjur
Hæ elsku Ragna mín, ég vona að þú jafnir þig fljótt í hálsinum og farðu nú varlega með þig. Geturðu ekki látið stjana svolítið við þig og fengið nudd frá tengdasonunum? Alltaf gaman að koma við og lesa bloggið þitt - og takk fyrir að koma á mína síðu og lesa mitt...held að þú sért sú eina sem þorir að skrifa í comments hjá mér - nei reyndar skrifaði Sigurrós þar um daginn ;o) En bestu batnikveðjur héðan úr blíðviðrinu í borginni. Þín Stefa

31. janúar 2006
Anna Sigga - Kvitta fyrir "heimsókn"!
Takk fyrir frábæran göngutúr! Þú tekur alveg magnaðar myndir!!! Farðu vel með þig, kveðja Anna Sigga

23. janúar 2006
Hulda simire og co i oxford
Blessud oll somul. og takk fyrir ad kikja alltaf a siduna mina og kvitta fyrir tad breytir ollu. Annars nennir madur aldrei ad skrifa.. en hey tid vorud eflaust buin ad fretta ad eg er ordin enta meiri fraenka. Komin 16" stelpa i dag ekkert sma gaman. En allavega bid ad heilsa ollum og hafid tad gott. Saknadarkvedja Hulda og co.

08. janúar 2006
Hildur Gunnarsdóttir
Sæl Ragna! Ég fór inn á síðuna þín frá þórunni í Portúgal. Hann Palli hennar er frændi minn. Ég var forvitin að vita hvaða Selfyssingur þetta væri þar sem ég bjó á Selfossi í 19 ár. Frá 1966-1985. Maður er alltaf svolítið forvitinn um fólk. Edda systir þín á að vita hver ég er. Ég bý nú á Akureyri. Það er aldrei að vita nema ég skoði síðuna þína aftur rétt til að skoða smá á Selfossi. Takk fyrir mig.Hildur Gunnarsdóttir

11. desember 2005
Hulda og co i oxford - Fraenkubod an min!
Blessud elsku fraenka min. Eins og tid erud eflaust buin ad heyra ad ta erum vid vist ekki a leidinni heim tessi jolin en vonum ad vid komumst i april i ferminguna hans Aegis Thors. Eg vona ad tid hafid yndisleg jol og gledilegt nytt ar og vid hittumst svo hress og kat a nyju ari. Skiladu astar og saknadarkvedjur til allra. Love Hulda og fjolskylda i oxford. Ps eg er komin med sma blogg sem er http://www.blog.central.is/huldasimire og svo er eg alltaf med barnaland siduna sem eg lofa ykkur ad eg a eftir ad setja inn fullt af myndum um jolin. og eitt enn til ykkar allra... tid erud meira en velkomin til Oxford hvenaer sem er "meira en nog plass".

27. nóvember 2005
Vilborg - afi og amma
Sæl Didda. Þegar þú varst að segja frá ömmu og afa datt ég í dágóða stund úr núinu og inn í minningar úr litla húsinu þeirra. Ég fékk bara smá kökk í hálsinn! Það var alltaf svo gott að vera hjá þeim og margt svo skemmtilagt sem þau geruð. Það kviknar alltaf smá á "gráttakanum" hjá mér þegar kemur að aðvetunni. Gott að eiga góðar minningar! Kveðja, Vilborg

18. nóvember 2005
Sigrún
Innilega til hamingju með merkisdaginn.Farðu vel með þig og nóttu lífsins. Afmæliskveðja úr Mosó.

14. nóvember 2005
selma og co - afmæliskveðja
Elsku Didda okkar! Innilega til hamingju með daginn. Kveðja Selma,Jói,Sigþór og Sólrún María

19. október 2005
Ragna - Æskuvinkonurnar.
Þakka þér fyrir að skrifa í gestabókina Eva og fyrir hlýju orðin þín. Við erum báðar svo heppnar að eiga yndislegar dætur sem ekki er hægt annað en hugsa til og þykja vænt um. Ég hlakka til að fá fréttir þegar litla krílið hennar Stefu verður komið í heiminn.

15. október 2005
Eva - kveðja
Flott síða hjá þér Ragna. Stefa var að sýna mér hana. Þið mæðgur auðgið sannarlega tilveruna í kringum ykkur. Sigurrósu verður aldrei nógsamlega þakkað það sem hún gerði fyrir samnemendur í KHÍ og mér er til efs að það geri nokkur betur. Ég ætla´nú um leið og ég óska þér til hamingju með síðuna að minna á næsta hjónaball í Laufinu sem verður laugardaginn 12. nóvember n.k. Ég ætla að reyna að muna eftir að senda þér tilkynningu um það. Bestu kveðjur Eva (mamma Stefu).

24. ágúst 2005
Silla - Flott sida
Tetta er rosalega fin sida hja ter Ragna og gott ad geta nalgast myndir af krøkkunum einhversstadar. Alveg frabært. Hilsen fra Danmark.

11. júlí 2005
Ragna - Velkomin.
Vertu velkomin í heimsókn á síðuna mína Dagbjört. Það verður gaman að kynnast vinkonu Þórunnar.

11. júlí 2005
Dagbjört Flórentsdóttir - Falleg síða
Komdu sæl ég er kölluð Dadda.'Eg er mjög hrifin af þessari síðu hjá þér ,Þórunn er kunningjakona mín sem á heima í Portugal, þannig komst ég í kynni við þína síðu og vona að þér líki það ekki illa. ég er á fyrstu metrunum með mína síðu og kann ekki neiitt sniðugt , en vona að það lagist.Gaman að sjá hvað þér hefur tekist vel upp,Kveðja úr sunnannverðum Hvalfirði.

09. júlí 2005
Ragna og Magnús - hamingjuóskir
Kæra Ragna og Haukur Hjartanlega til hamingju með brúðhjónin og við sendum þeim Sigurrós og Jóa okkar bestu óskir un gæfuríka framtíð megið þið öll eiga yndislegan dag kær kveðja Ragna og Magnús

09. júlí 2005
Þórunn - Hamingjuóskir
Kæra Ragna, þetta verður örugglega ógleimanlegur dagur, ég er búin að lesa um undirbúninginn á síðu brúðhjónanna. Innilegar hamingjuóskir til ykkar allra, ég hlakka til að sjá myndir og lesa um atburði dagsins. Bestu kveðjur frá Portúgal

16. maí 2005
Magnús Aðalbjörnsson - þakkir
Heil og sæl Ragna og Haukur! Innilegar þakkir fyrir fallega kveðju á vefkorti sem ég að sjálfsögðu prentaði út. Raunar vil ég líka senda Hauk norðlenskar afmæliskveðjur en hann á sama afmælisdag og Sveinn Björnsson heitinn, fyrsti forseti lýðveldisins. Ég tek undir mikla tilhlökkun vegna Spánarferðar. Sjáumst heil. Kær kveðja. Magnús og Ragna

16. maí 2005



06. apríl 2005
Edda Garðars - vinkona
Didda mín, Mikið er gaman að skoða gestabókina þína, ég sé að þú ert búin að eignast marga gestabókavini. sjáumst á laugardaginn. þín vinkona Edda G

17. mars 2005
afi
Alveg ertu einstök. Þótt þig hrjái veikindi og málleysi, hagarðu þér eins og hæsti lottóvinningurinn hafi fallið þér í skaut. Bjartsýni og birta leika um allt sem þú skrifar. Hafðu þakkir fyrir góðu og uppbyggilegu skrifin þín. Kveðja í SS

13. mars 2005
Erna - frænkuhittingur
Sæl Didda mín. Gott að ná sambandi við bloggið þitt aftur. Vona að þið frænkurnar hafið átt saman, góðann páskafrænkuhittingssunnudag í dag. (Þettað hefði getað orðið aðeins lengra ef það hefði verið Pálmasunnu-dagur í dag). Ég á þettað inni þangað til seinna. Kærar kveðjur Erna frænka. Ps! Vona að kvefið fari nú að láta sig, svo þú getir sungið med hinum vorfuglunum. Sú sama

06. mars 2005
Unnsteinn
hæhæ... jæja helduru ekki að maður sé búinn að skrifa smá fréttir á bloggið sitt..... ;) gott að sjá að þú ert dugleg að skrifa!

21. janúar 2005
Magdalena
Halo ég er bara að skrifa í gestabókina að því það stoð entilega skrifið í gestó en ég þekki þig ekki en flot síða Ragna Kristín en ég er 9 ára já og er bara í 4 bekk bæ og flot síða en og aftur bæ

24. nóvember 2004
Ragna
Dear Cathy! Thank you for signing my Guestbook. The Postman will bring you a letter from me one of the very next days. Take care!

24. nóvember 2004
Þórunn
Jæja Ragna mín, nú get ég heimsótt þig úr nýju tölvunni minni. Læt nýja netfangi mitt fylgja með. Bestu kveðjur frá Portúgal Þórunn

23. nóvember 2004
Cathy
Hello Ragna, I don't have a clue what anything other than "myndir" means - but I guess this is the "Guestbook"(?). I love your photo - and think your site is very professional - Deanna would be proud of you. With love xxx

15. nóvember 2004
Gurrý Guðfinns - Sæl Ragna
Mikið var gaman að fá þig í heimsókn á síðuna mína og ég hef sömuleiðis verið að kíkja í dagbókina þína. Seinbúnar afmælisóskir og kveðja frá annari Sporðdrekakellu, Gurrý

14. nóvember 2004
Unnsteinn - HARI HURI TAU KIA KOE
Til hamingju með afmælið um daginn... ætlaði bara að skila inn smá kveðju.... Unnsteinn ný sjálendingur

14. nóvember 2004
Þórunn
Kæra Ragna, mér finnst leitt að hafa ekki vitað af afmælisdeginum þínum fyrr en núna, en betra er seint en aldrei, hjartanlega til hamingju, ég sé að þú áttir góðan dag með fólkinu þínu. Ég skrifa þér fljótt, Þórunn

13. nóvember 2004
Ragna
Þakka ykkur öllum sem hafið verið að skrifa í gestabókina mína undanfarið. Það er alltaf svo gaman að sjá að einhver hefur skrifað sig.

13. nóvember 2004
Vilborg Jónsdóttir - Afmæli
Sæl Didda, takk fyrir síðast og til hamingju með afmælið í gær! Kv.Vilborg

12. nóvember 2004
Sigrún Sigurðar
Innilega til hamingju með daginn. Kveðja úr Mosfellsbænum

12. nóvember 2004
Loftur
Sæl Ragna mín og innilega til hamingju með daginn. Ég ætlaði að hringja í dag, en það bara fórst fyrir vegna anna. Í fyrramálið ætlum við hjónakornin að skreppa til Köben og í framhaldi af því, til Tyrklands og verðum á þessu flakki í tæpan hálfan mánuð. Þess vegna þurfti ég að klára ALLT í dag (ég held reyndar að það hafi verið einsog í nös á ketti sem ég gerði) og var bara þokkalega stressaður. Við tölum saman síðar og vonandi gerir nú Haukur eitthvað huggulegt fyrir þig í tilefni dagsins, ég veit reyndar að hann gerir það ! Kær kveðja, Loftur og Dröfn.

08. nóvember 2004
Hulda
bara ad profa hvort eg gerdi siduna retta nuna barnaland.is/barn/9757

08. nóvember 2004
Hulda Thorsdottir
blessud fraenka! Ekkert sma gaman ad sja myndir af ykkur ollum og heyra um allt sem er ad gerast tarna hja ykkur a klakanum. vonast til ad hitta ykkur a milli 10 des og 6 jan en ta verdum vid a landinu. hafid tad sem allra best og astar og saknadarkvedjur til allra. ps. endilega kiktu a siduna hja litlu dullunum minum.

08. nóvember 2004
Dóra Þórsdóttir
Sæl frænka og takk fyrir síðast,gaman að hittast svona reglulega! Til lukku með heimasíðuna þína,gaman að geta fylgst með þér, fengið góðar uppskriftir og séð heimasíður frændfólks míns. sjáumst svo í byrjun des kveðja Dóra

08. nóvember 2004
Rut frænka - kær kveðja
Sæl Didda mín, ég eins og Kolla stóðst ekki mátið að kíkja aðeins á síðuna þína og datt heldur betur í fjölskyldumyndir og uppskriftir, frábært framtak og skemmtilegt. Ég á örugglega eftir að nýta mér uppskriftir og að geta skoðað allar myndirnar. Kveðja Rut.

07. nóvember 2004
Kolla frænka - kveðja
Ég var svo forvitin að sjá síðuna þína að ég kíkti un leið og ég kom heim, frábær síða og gott að geta séð myndir af frænkum og frændum. kem oftar í heimsókn!! sæl að sinni og sjáumst í frænkuboðinu!!!!!!

05. október 2004
Edda systir - kveðjur úr næsta húsi
Hæ Didda mín , ætlaði bara að kíkja á póstinn minn áður en ég færi að sofa og datt í hug að kíkja á síðuna þína. Enn sama rokið , vona samt að við sofum fyrir því í nótt. Verð að drífa mig í rúmið áður en matarlistin nær tökum á mér því ég fór að lesa uppskriftirnar þínar og langaði mest að fara að baka !! Sjáumst á morgun

29. ágúst 2004
Þórunn Guðnadóttir - Hitt og þetta
Sæl og blessuð, ég rakst á heimasíðuna þína í flandri mínu á netinu, finnst hún skemmtileg og uppskriftasíðan mjög áhugaverð, ég á örugglega eftir að skoða hana betur og prófa eitthvað af réttunum. Ég vona að þú fáir góðan bata eftir aðgerðina og finnir einhverjar nothæfar buxur. Ég bý í Portúgal og er nýbyrjuð að blogga, vertu velkomin á síðuna mína, Þórunn

07. ágúst 2004
Magnús Aðalbjörnsson - kveðja
Kæra Ragna.Ég vil fyrir það fyrsta þakka ykkur Hauk fyrir ljúfan kvöldverð eftir annríki mánudagsins og ekki síður fyrir ánægjulega samvinnu á heimili Guðgjargar og Magnúsar Más. Ef þið Haukur eigið einhvern tíma leið um Akureyri þætti okkur Rögnu minni gaman að fá ykkur í heimsókn. Kær kveðja. Magnús

05. júlí 2004
Bogga - Kveðja
Sæl Ragna mín, sá tengil á síðuna þína hjá henni Hullu. Hún er mjög flott síðan þín og ég á pottþétt eftir að kíkja á uppskriftirnar hjá þér aftur (fann fiskirétt sem ég er ægilega spennt fyrir :) ) Fer nú að reyna að kíkja á ykkur með Lóruna mína. Vona þið hafið það gott, bestu kveðjur, Borghildur

29. júní 2004
Sigurmundur Páll Jónsson - Bank bank...
Þessi fjölskylda fer nú að verða sú tæknivæddasta í heimi held ég. Gaman að fylgjast með hvað er að gerast hjá ykkur á þessari stór fínu síðu.

14. júní 2004
Edda Garðars - uppskrift
Didda mín, ég er í heimsókn á heimasíðunni þinni og þá dettur maður líka í uppskriftirnar þínar, veistu það að hún er algjörlega horfin hrísgjrónauppskriftin hans Eiðs Guðnasonar!!! er það ekki góði rétturinn sem þú hefur stundum verið með í saumaklúbbnum? kveðja Edda G

31. maí 2004
selma og jói
Gaman að skoða heimasíðuna. Flottar myndir að utan.

13. maí 2004
eva
Sæl Ragna mín. Ég veit ekki hvort þið komist neitt í tölvu í fríinu en ef svo er þá vona ég bara að þið skemmtið ykkur konunglega. Kysstu pabba frá mér til hemingju með afmælið hans í gær. ég sendi sms en veit ekki hvort það komst til skila. Kær kveðja Eva

29. apríl 2004
Helga Þorsteinsdóttir - Kveðja
Óska þér góðs bata og hlakka til þegar þú ferð að skrifa aftur, það er mjög gaman að kíkja á síðuna þína. Ég er líka að nota uppskriftir frá þér, er búin að prófa fiskrétti og er ánægð. Bestu kveðjur Helga.

21. apríl 2004
Ragna - kveðja
Sæl nafna! Þakka þér fyrir síðast. Flott síðan þín,datt strax í uppskriftirnar og prentaði út fiskirétti sem er uppáhald bóndans,kær kveðja til Guðbjargar og barnanna og mikið var gaman að hitta ykkur öll. Kveðja Ragna.

18. apríl 2004
Magnús Már - Glæsileg síða
Sæl frú. Glæsileg síða hjá þér. Ég er sérstaklega hrifinn af uppskriftasíðunni og án vafa á ég eftir að nýta mér hana oft. Mér þykir þú einnig snögg að setja myndir inn á myndagalleríið. Frábært framtak.

28. mars 2004
Skeleggur
Smekkelg síða hjá þér Ragna, varðandi síðuna hjá Afa þá er það hann sem þarf að "upgreida" síðuna sína þannig að við getum "kommenterað" hjá honum en það hlýtur að standa til bóta. kveðjur Skeleggur

20. mars 2004
Hulla og co
Hæ hæ var bara að skoða og ákvað að segja hæ, þar sem við höfum ekki hitt ykkur svo lengi. En ég þarf að skrepp á Selfoss á mánudag og aldrei að vita nema ég kíkji við í kaffisopa. ;o)

20. mars 2004
Anna S. Hjaltad - Þar kom að minni mitt klikkaði!
En það skeikaði þó bara um einn dag. Skyldi ég hafa ruglast á því að mæðgurnar eiga afmæli sitthvorn daginn. Svo núna ætti ég líklega að senda þér hamingjuóskir með dótturdótturina. En í staðinn óska ég þér til hamingju með þær báðar! Farðu vel með þig! Kveðja, Anna

16. mars 2004
afi
Þetta er alveg ljómandi síða hjá þér og dagbókin skemmtileg. Hef læðst til þín eins og þjófur að nóttu án þess að gera vart við mig. Kominn tími að þakka trakteringarnar. Kveðja afi

29. febrúar 2004
Edda Gerður Garðarsdóttir - Takk fyrir síðast
Didda mín, Sæl og blessuð og takk fyrir síðast. Þér hefur vonandi gengið vel austur. Ég mátti til með að kíkja á uppskriftirnar þínar sem eru alveg frábærar, ég prentaði strax út 2 fiskuppskriftir, þú manst að ég sagði þér í gær að Nonni væri búinn að kaupa 10 kg. af ýsflökum svo nú er spennandi að prufa fullt af nýjum uppskr. Ég er núna á fullu að pakka ofan í tösku og eins mikið á fullu að rífa upp úr henni aftur, þetta er alltaf sama baslið, hvað á nú að hafa með og hvað ekki. Og alltaf er maður með of mikið. Didda mín, ég bið innilega að heilsa dætrunum og fjölskyldunni. þín vinkona Edda GG

05. febrúar 2004
Erna - Gaman að fylgjast með
Sæl Didda Mín! Þú skrifar eins skemtilega og þú talar. Vona að heilsan sé orðin betri. Ég á eftir að "koma aftur" og skoða hjá þér seinna. Kærar kveðjur til allra. Erna

03. desember 2003
Loftur
Við mamma vorum að skoða síðuna þína og höfðum bæði gagn og gaman að og mamma er "eiginlega alveg" ákveðin í að koma sér upp einni slíkri. Hún hafði voða gaman af að skoða "gömlu myndirnar" og svo auðvitað langömmubörnin sín. Takk fyrir og kær kveðja, Loftur og mamma.

25. nóvember 2003
Silja - halló
halló etta er flott hja þér mar hef seð etta flottara en etta er mjög flippað og flott hjá þér ragna mín hver sem þú svo sem ert...

25. nóvember 2003
Loftur
Sæl Ragna mín. Ég hélt í fávizku minni ,að fólk sem er fætt fyrir miðja síðustu öld hefði ekki uppgötvað tölvuna og allt sem tölvutæknin hefur uppá að bjóða ! En stundum (sjaldan) hef ég rangt fyrir mér og mér sýnist þetta vera býsna glæsilegt hjá þér og til hamingju með það !! Ég er bara svo saddur núna, að ég treysti mér ekki til að líta á uppskriftirnar. En ég trúi að þar sé að finna uppskriftir að kökum sem geta kallað fram minningar sem gætu gert mann ungan á ný. Ekki svo að skilja að ég sé orðinn gamall, þó aðstæður hafi breytzt... Kær kveðja, Loftur.

14. nóvember 2003
- Gestabók
Flott síða,flott gestabók

03. nóvember 2003
Hulla
Halló ragna. Loksins loksins gat ég fundið mér tíma til að líta á síðuna þína. Hún er mjög góð og svo ertu með svo fínar myndir inná henni ;o) Kveðja frá öllum

18. október 2003
Steinunn - Heimsókn
Sæl Ragna mín, gaman að hitta þig loksins í eigin persónu! ;o) Finnst ég hafa þekkt þig lengi í gegnum þína hörkuduglegu dóttur og svo hef ég auðvitað lesið bloggið þitt :o) Næst verður þú samt að þiggja kökur og meððí, ég varð að belgja mig út af þessu sjálf! Takk fyrir innlitið og hafðu það gott. Steinunn sveitakona

05. ágúst 2003
Birna Þorsteins
Blessuð ! Ég fylgist með hverju spori hjá þér með því að lesa dagbókina þína. Gaman að frétta svona af frændfólkinu og til hamingju með þennan frábæra sólpall ! Bestu kveðjur, Birna. Þú getur kíkt á olifjalar.com þá sérð þú ýmislegt af okkur.

29. júlí 2003
Edda Garðarsdóttir - Til hamingju
Didda mín, Til hamingju með heimasíðuna þína. Þú mátt trúa því að ég (svona forvitin eins og ég er) heimsæki þig reglulega á síðuna þína. kveðja Edda vinkona

24. júlí 2003
Edda systir
Heimasíðan er fín. Til hamingju með hana. Loksins mundi ég eftir að kikjainn á hana. Það hefur alltaf tekið styttri tíma að hlaupa yfir til þín að fá fréttir og hittast upp á gamla mátann !!

14. júlí 2003
Sivva - Til hamingju með síðuna
Sæl Ragna mín og innilega til hamingju með síðuna - frábær hugmynd. Ég sé að þú hefur misst systur þína og votta þér samúð mína vegna fráfalls hennar. Vona að þið mæðgur hafið það sem allra allra best í Englandi. Avon lifi.....

02. júlí 2003
Helga Þorsteinsdóttir - Kveðja
Gaman að skoða síðuna þína, samhryggist þér vegna andláts systur þinnar. kveðja frá Hvolsvelli, Helga

24. júní 2003
Sigrún
Til hamingju með heimasíðuna. Það er ekki dónalegt að geta náð sér í gómsætar uppskriftir þegar síðan verður tilbúin- ég á eftir að notfæra mér hana við búskapinn:) Ég votta þér samúð mína vegna andláts systur þinnar. Kveðja, Sigrún

24. júní 2003
Anna Sigríður Hjaltadóttir - Votta þér samúð mína!
Elsku Ragna mín! Vildi bara votta þér samúð mína vegna fráfalls systur þinnar. Viltu einnig senda samúðarkveðjur frá mér til Eddu og Jóns Inga! Mun hugsa mjög sterkt til þín næstu vikurnar!

23. júní 2003
Stefa - :D
Sæl Ragna mín! Gaman að sjá að þú ert komin á netið :) Kær kveðja, Stefa

19. júní 2003
Anna Sigríður Hjaltadóttir - Velkomin á bloggið!
Sæl Ragna mín! Til hamingju með síðuna þína. Ég mun heimsækja hana reglulega. Bestu kveðjur, Anna Sigga.

17. júní 2003
Jói - Komið í loftið
Jæja, þá geturðu farið að dæla efninu inn :)

17. júní 2003
Sigurrós - Til hamingju :)
Til hamingju með að vera komin með vísi að síðu. Nú geturðu farið að blogga svo við getum fylgst með þér eins og þú með okkur ;) hehe