![]() |
![]() |
![]() |
|
|
Fiskréttur ráðherraSteikja saxaðan lauk, papriku og sveppi í léttolíu litla stund. Roðflett ýsuflök sett í eldfast fat, vætt með sítrónusafa og kryddað. Steikja grænmetið og það sett ofan á. Gott að hella 1 ? 2 hrærðum eggjum og jafnvel smávegis léttmjólk yfir. Tilvalið að skera niður eða raspa ostaafganga og strá yfir réttinn. Bakað í ofni þar til fiskurinn er tilbúinn og osturinn bráðinn. Borið fram með hrísgrjónum, brauði og salati eða kartöflum.
|