Category Archives: Ýmislegt

Hér er ýmislegt sem erfitt er að flokka.

GLEÐILEGA PÁSKAHÁTÍÐ KÆRU ÆTTINGJAR OG VINIR.

Posted in Ýmislegt | 1 Comment

Föstudagurinn langi.

Nú er föstudagurinn langi aðeins farinn að styttast. Þetta hefur verið einn rólegasti dagur sem ég hef upplifað. Síminn hefur ekki hringt, ég hef ekki farið út fyrir dyr, enginn komið og nánast engin bílaumferð verið hérna í kring í … Continue reading

Posted in Ýmislegt | 1 Comment

Miðvikudagur smá gullkorn.

Á miðvikudögum þá sæki ég Rögnu Björk í Smáraskóla um tvöleytið og fer með hana í Myndlistarskóla Kópavogs á Smiðjuveginum, en amma Björk sækir hana síðan. Það er alltaf sama „rútínan“ hjá okkur. Þegar við erum komnar í bílinn og … Continue reading

Posted in Ýmislegt | 2 Comments

Skemmtilegur tími.

Núna þegar kominn er sá tími sem öll barnabörnin mín, nema Oddur Vilberg eiga afmæli, þá er vorið að koma þrátt fyrir snjó á jörðu og kuldabola, sem á það ennþá til að bíta mann smávegis.  Sólin hækkar á lofti … Continue reading

Posted in Ýmislegt | Leave a comment

Gamlingjarnir.

Okkur gamlingjum datt í hug að fara í bíó í kvöld. Myndin var sýnd í Sambíói í Kringlunni, en mörg ár og margir dagar eru frá því við höfum hvort um sig farið í bíó þar og Haukur sagðist aldrei … Continue reading

Posted in Helstu fréttir., Ýmislegt | 5 Comments

Lítil þúfa – stór þúfa.

Ég opnaði áðan Kyrrðarsporin mín, sem vildu að ég hugleiddi þennan texta „Hugurinn getur aðeins einbeitt sér að fáeinum hugmyndum í einu og jafnvel þær verða yfirleitt fljótlega óskýrar“. Þetta skýrir einmitt ástand mitt þessa dagana. Ég hef verið að … Continue reading

Posted in Ýmislegt | 1 Comment

Áhættan í lífinu.

Hafið þið tekið eftir því hvað daginn er að lengja. Þó það snjói og þó það blási, þá finn ég samt að vorið er í nánd.  Ég gjóa augunum hérna út þar sem Haukur geymir húsbílinn sinn og er strax … Continue reading

Posted in Ýmislegt | 3 Comments

Eftir góða nótt býður maður vitaskuld góðan dag.

Það er hvasst úti og svona hvorki né veður. Stundum fagnar maður svona dögum sem ekki toga í mann að verða að fara eitthvað af því veðrið sé svo fallegt. Svo fer maður út í bíl og fer bara eitthvað … Continue reading

Posted in Hugleiðingar mínar, Ýmislegt | Leave a comment

Er meinilla við það sem spinnur vefi.

Mér hefur alltaf verið meinilla við þá sem gera vefi, það er að segja alla aðra en þá sem gera tölvuvefi því þeir eru bráðnauðsynlegir og mega sko ekki missa sig 🙂  En verur  eins og t.d. kóngulær og ýmsar … Continue reading

Posted in Ýmislegt | 2 Comments

Gamli tíminn rifjast upp.

Í sjötugs afmæli minna góðu vina Hreins og Birgit í gær rifjuðust upp margar góðar stundir frá liðnum tíma. Þarna var m.a. allur gamli spilaklúbburinn hans Odds heitins og þar á meðal æskuvinir hans Hreinn og Kristinn, en þeir byrjuðu … Continue reading

Posted in Hugleiðingar mínar, Ýmislegt | 2 Comments