Category Archives: Helstu fréttir.

Fyrsti dagurinn gekk vel

Sigurrós skrifar: Við systurnar fórum að heimsækja mömmu í kvöld og hún var furðuhress, sátt og sæl. Hún fékk reyndar einhverja mænudeyfingu í svæfingunni og hún er meira en hálfan sólarhring að fara úr, svo að það má svo sem … Continue reading

Posted in Helstu fréttir. | 7 Comments

Vöknuð

Sigurrós skrifar: Mamma var að hringja. Hún var sum sé vöknuð og komin niður á deild. Hún hljómaði nú aðeins hressari en ég bjóst við og það var gott að heyra 🙂 Hún fékk fínan svæfingalækni sem sagðist sko gera … Continue reading

Posted in Helstu fréttir. | 7 Comments

Aðgerð lokið (Sigurrós skrifar)

Sigurrós skrifar: Jæja, við systurnar erum búnar að taka að okkur að leyfa ykkur að fylgjast með hvernig gengur hjá mömmu þessa dagana. Guðbjörg verður tengiliðurinn við spítalann og ég verð síðan rafræni tengiliðurinn við ykkur 😉 Guðbjörg var að … Continue reading

Posted in Helstu fréttir. | 4 Comments

Yndislegt starfsfólk.

Já það hefur nú verið meira vesenið á mér undanfarið. Fyrst lenti ég inn á bráðavakt í sólarhring á fimmtudagskvöld vegna rosa lágs blóðþrýstings og hættulega lágs Natrium í blóði  og síðan aftur á mánudagskvöld þegar blóðþrýstingurinn fór allt of … Continue reading

Posted in Helstu fréttir. | 4 Comments

LSH s.l. nótt og aðgerðardagur kominn.

Jú við höfum verið dugleg að skreppa eitthvað og gera eitthvað skemmtilegt þessa dagana.  Í gær fórum við í bíltúr austur yfir fjall, fórum Þrengslin og byrjuðum á því að skoða málverkasýningu Jóns Inga mágs míns, sem heldur nú sýningu … Continue reading

Posted in Helstu fréttir. | 8 Comments

Alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast á meðan beðið er.

Ég  átti fína helgi og fór í skemmtilega fermingarveislu á laugardaginn austur í Grímsnesi. Haukur átti afmæli sama dag og fékk aldeilis gómsætar veitingar í veislunni. Hann hefði líklega ekki fengið mikið af tertum heima hjá sér því  því bakarinn á … Continue reading

Posted in Helstu fréttir. | 3 Comments

Fyrir ykkur

Fyrir ykkur sem ég hef lofað að skrifa hérna smá fréttir af framgangi mála  þá hitti ég læknateymið í dag og það var staðfest að ekkert nýtt kom fram sem ekki sást í ómskoðuninni.  Þetta fannst mér mjögt góðar fréttir. … Continue reading

Posted in Helstu fréttir. | 6 Comments

Hugsað upphátt.

Takk, Takk fyrir góðar kveðjur.  Í dag er fimmtudagur 10. maí og ég komst loksins í segulómunina. Á morgun fæ ég svo að vita nánar um þetta og fæ að öllum líkindum aðgerðardagsetninguna. Ég var að spá í það áðan … Continue reading

Posted in Helstu fréttir. | 11 Comments

Segulómtækið er enn bilað – Hvað er til ráða???

Já, þið ráðið hvort þið trúið því eða ekki, að síðan ég mætti á röntgendeildina s.l. fimmtudag og var sagt að segulómtækið væri bilað, þá er nú komið þriðjudagskvöld og tækið er enn bilað. Ég dingla bara svona í lausu … Continue reading

Posted in Helstu fréttir. | 6 Comments

Allir að láta mig hafa góðar upplýsingar.

Já það hjálpast allir að til þess að ég nái fullri heilsu. Frænka mín á Bornholm er búin að senda mér bók um óhefðbundnar lækningar. Ég hef í höndum dagbók sem ég fékk frá konu sem er búin að fara … Continue reading

Posted in Helstu fréttir. | 1 Comment