Efni: 1 Egg 150 gr. Púðursykur 1 ½ dl. 50 gr. Smjörlíki 175 gr. Hveiti 2 ½ dl. 1 tsk. Sódaduft 2 tsk. Kanill 1 tsk. Negull 1 tsk. Engifer ½ tsk. Allrahanda 2 msk. Kako 1 ½ dl. Súrmjólk Döðlur eða rúsínur eftir smekk.
|
Aðferð: Egg og sykur þeytt saman, smjörlíkið hálfbrætt og hrært samanvið. Síðan er þurrefnunum blandað í ásamt döðlum/rúsínum.
Bakað við 170°í ca. 50 mínútur.
Þessi kaka er ódýr og mjög góð. Ágætt að baka í 2 litlu formunum og frysta annað. |