Þessa leyfi ég mér að kalla RÖGNUKÖKUR, því mig langaði til að gera smákökur með döðlum í og súkkulaði og þetta er útkoman.
200 gr. smjör 1 bolli sykur 1/2 bolli púðursykur 2 egg 2 tsk. Vanilludropar 3 bollar hveiti 1 tsk. Matarsódi 1 tsk. Salt 1 bolli brytjað suðursúkkulaði 1 bolli smátt brytjaðar döðlur.
|
Smjör sykur og egg þeytt vel. Súkkulaðinu og döðlunum er fyrst blandað saman við þurrefnin og síðan er því blandað smátt og smátt saman við eggjahræruna. Bakað við 180 í °ca. 7 mínútur. Sett með teskeið á bökunarpappír. Ég baka allt á blæstri. |