2 bollar heilhveiti 1 bolli spelt 1 bolli gróft haframjöl – lífrænt 1 bolli fjölkorna eða 5 korna mjöl sem fæst í heilsubúðum. 5 tsk. Lyftiduft Tæplega 1 tsk. Salt Rúmlega ½ líter AB mjólk – létt. |
Þurrefnunum blandað saman og vætt í með mjólkinni. Hrært með sleif og þegar deigið er orðið mátulega þykkt er það sett í vel smurt form sem látið er í kaldan ofninn. Stillt á 175° og brauðið bakað í 1 ½ klukkustund |