Efni: 500 gr. Hveiti 180 gr. Smjörlíki 160 gr. Sykur 2 tsk. Lyftiduft ½ tsk. Hjartasalt ½ tsk. Sódaduft 1 tsk. Kardemommur 1 egg Mjólk eftir þörfum. |
Aðferð: Þurrefnunum blandað saman í skál, smjörlíki mulið og hnoðað saman við, vætt með eggjunum og mjólkinni, sem sagt venjul. hnoðað deig. Deigið flatt út í hæfilega stærð, sulta smurð yfir og kanelsykri stráð yfir sultana. Rúllað upp og skorið í sneiðar. Ath. Þegar deigið er flatt út er hægt að ákveða hve stórir snúðarnir eiga að verða þegar deigið er rúllað upp. Bakað við 200 ° þar til það er fallega ljósbrúnt. |