2. hluti – Ástfanginn unglingur árið 1960.

Það hafði allt í einu orðið algjör umbylting á lífi mínu og nú hringsnerust alls konar vangaveltur í höfðinu á mér daginn út og daginn inn  – Getur verið að hann sé í alvöru hrifinn af mér?  – Ætli hann fari ekki að hringja? Svo tók hjartað aukaslag í hver skipti sem síminn hringdi. Svo var útlitið á mér allt í einu alveg ómögulegt  -Oh, af hverju er ég nú endilega að fá svona ljóta bólu núna?  – Getur verið að ég sé kannski of feit? – Af hverju þarf nú hárið á mér að vera svona ljótt einmitt núna  –Í hverju get ég eiginlega farið?  Það er allt svo hallærislegt sem ég á. Ætli hann verði svo ekki frekar hrifinn af einhverei skólasystur í Versló því þær eru örugglega allar miklu sætari en ég?

Ég fæ bara í magann við að rifja þetta upp, en ég hugsa að flestar konur muni eftir svona vangaveltum frá unglingsárunum. Mikið var ég nú heppin að eiga mömmu sem ég gat ausið þessu öllu yfir og hún reyndi að róa mig niður eftir bestu getu.  Já það er ótrúlegt hvað fyrsta alvöru ástin getur breytt miklu í lífi 16 ára unglings, eða réttara sagt nærri sextan ára.

Milli þess sem talast var við í síma vorum við að smá hittast, fórum kannski í bíó ef við áttum peninga til þess og svo þurftu auðvitað bæði að sinna vel náminu sínu, en ég var að klára Verknám og Oddur var í Versló. Pabba þótti orðið nóg um hvað ég fór oft til þess að hitta “þennan strák” (eins og pabbi kallaði hann til að byrja með) og hvað ég eyddi miklum tíma í að tala við hann í síma. Við pabbi höfðum ekki sömu skoðun á því að ég færi of oft út með “stráknum” á kvöldin, því með skólanum þá  kenndi ég líka leðurvinnu á kvöldnámskeiðum hjá Æskulýðsráði.  Á þessum tíma vildi hann pabbi minn bara ekki hlusta á rökin frá litlu stelpunni sinni.  Áður var ég jú vönust því að sitja að mestu heima með foreldrum mínum með handavinnu eða föndur á kvöldin.  Ég var mjög mikil pabbastelpa og fannst sjálfri ekkert hafa breyttst, en það var jú óneitanlega kominn annar herra sem hafði nú algjöran forgang og litla stúlkan hans pabba síns notaði allt í einu ekki eins mikinn tíma,  eða hafði eins mikinn áhuga á að vera bara róleg heima á kvöldin.

Alltaf vakti pabbi eftir mér þegar ég fór í bíó og fylgdist með því hvort ég kæmi ekki örugglega beint heim með strætó eftir bíóferðir.  Mér fannst þetta merki þess að hann treysti mér ekki og ég var svo ósátt við það, ekki síst vegna þess að ég hvorki reykti né smakkaði vín eins og mjög margir á mínum aldri voru farnir að gera og ég var líka mjög ábyrg og varkár að fara ekki of geist í ástamálunum.

———————-

Það kom svo að því seinna, að Odd langaði til þess að ég kæmi með honum heim til þess að hitta fjölskyldu hans, en hann var þá búinn að koma heim til mín og hitta mömmu, en hann elsku pabbi minn notaði strútsaðferðina og var allt í einu svo upptekin við að gera eitthvað frammi í herbergi að hann kom ekkert fram.  Hann átti örugglega í miklu sálarstríði og  gat ekki viðurkennt það fyrir sjálfum sér að litla dóttirin væri orðin alvarlega ástfangin.  Hann afbar bara ekki tilhugsunina.

Ég kveið alveg rosalega fyrir því að hitta fjölskyldu Odds.  – Hvað ætli þeim finnist um mig?

Ég fór með strætó niður í Hlíðar og þegar ég síðan stóð fyrir utan útidyrnar á Bólstaðarhlíð 7 var ég með dúndrandi hjartslátt og hnút í maganum og var að hugsa með mér hvort ég ætti kannski bara að læðast í burtu og koma heldur seinna. Ég ákvað að herða frekar upp hugann og hringja dyrabjöllunni. Ég var svo rétt búin að teygja mig í átt að bjöllunni þegar dyrnar opnuðust óvænt og brosandi kona stóð í gættinni og sagðist hafa séð að ég var að koma. Hún kynnti sig svo, Guðbjörg hét hún og var mamma Odds. Það þarf ekkert að orðlengja það, að þessar móttökur breyttu öllu og mér leið strax svo miklu betur.
Svo hitti ég hina í fjölskyldunni þegar ég kom inn í stofuna, Pétur hét pabbinn og systkinin voru Ingunn sem var 14 ára og næst Oddi í röðinni, en hann var stóri bróðir 17 ára. Svo voru það yngri bræðurnir Einar, sem var nýorðinn 12 ára og Loftur Þór sem var 5 ára. Svo bað Oddur mig að koma aðeins með sér og viti menn, í næsta herbergi var tágakarfa á hjólum og í henni lá ungbarn, lítil yndislega falleg stúlka.  “Þetta er svo litla systir mín hún Linda Björg sem er fædd í júlí.” sagði Oddur hreikinn og litla stúlkan bræddi algjörlega hjarta mitt með fallegu augunum sínum. „Hvílíkt ríkidæmi að eiga svona mörg systkini“ sagði ég við Odd. “ Já þú segir það” sagði hann hugsi. “Jú auðvitað, en það er ekki alltaf svona rólegt hérna.”

Mér varð hugsað til þess hvað það hlyti að vera gaman að eiga svona mörg systkini. Ég átti tvær systur, önnur var sjö árum eldri en ég og hin 14 árum eldri svo að í uppvextinum höfðum við ekki mikinn félagsskap hvor af annarri. Þegar ég var sjö ára var elsta systir mín flutt að heiman og eignaðist á því ári sitt fyrsta barn og sú sem var sjö árum eldri en ég var komin á unglingsár og var ekkert hrifin að þurfa alltaf að hafa þennan litla krakka í eftirdragi – en hvað ég skildi það þegar ég var sjálf kominn á þann aldur.  (Seinna, eftir að ég varð eldri, kom svo í ljós að aldur skiptir engu máli og þá var eins og við værum allar á sama aldrinum.)

Framhald síðar.

This entry was posted in Gamla ástarsagan og ýmislegt henni tengt... Bookmark the permalink.

8 Responses to 2. hluti – Ástfanginn unglingur árið 1960.

  1. Katla says:

    Þó tímarnir hafi mikið breyst þá hefur óöryggið ekkert breyst; mikið sem ég kannast við hugsanirnar sem þutu um huga þinn varðandi sjálfa þig, orðin skotin í strák. Og hugsaðu þér svo, að síðar áttir þú eftir að skýra frumburð þinn í höfuðið á þessari konu, sem tók svona vel á móti þér í Bólstaðarhlíð, eða er það ekki svo? Yndislegur lestur : )

  2. Ragna says:

    Jú Katla mín og það sem meira er hún hét Guðbjörg Oddsdóttir svo það var mjög kært að skíra fyrstu dótturina nafninu hennar og ekki var verra að föðurnafnið var það sama.

  3. Guðbjörg says:

    Ég man nú ekki betur en mamma mín vekti eftir mér þegar ég var lengi úti sem unglingur. Einhvernvegin datt mér aldrei í hug að taka því sem miklu vantrausti. Enda vorkenndi ég öllum börnum sem máttu vera úti eins lengi og þau vildu ;0)

    Frumburðurinn.

  4. Ragna says:

    Ha,ha Guðbjörg mín,þegar þú varst á þessum aldri leyfði ég þér að fara í menntaskóla úti á landi og hafði ekkert um það að segja hvenær þú komst heim á kvöldin. Á meðan þú varst heima varstu alltaf svo spennt að segja mér frá því sem þú hafðir verið að gera og upplifa að ég var spennt að vaka eftir þér. Ég held að við höfum bara báðar verið ánægðar með skipulagið á þessu hjá okkur, því eins og þú segir þá vorkenndir þú þeim sem enginn skipti sér af hvert væru að fara eða hvenær kæmu heim.

  5. Sigurrós says:

    Það var alltaf kósí að koma heim af menntaskólaballi og kíkja í gættina á svefnherberginu hjá mömmu (sem auðvitað var vakandi og oftast að lesa í bók) og fá að setjast á rúmstokkinn og segja 1-2 sögur af ballinu áður en ég fór í háttinn 🙂

    Mikið svakalega er annars gaman að lesa þessar sögur! Vér viljum meira meira meira! Bíð spennt eftir framhaldinu 🙂

  6. Jói says:

    Þess má geta að þeir sem vilja að mynd birtist af þeim hérna í athugasemdakerfinu (og öðrum sem nota svipuð kerfi) þá geta þeir farið á gravatar.com og skráð sig þar undir netfanginu sem þeir nota hér og sett svo inn mynd. Þá birtist hún sjálfkrafa á WordPress-kerfum (eins og þetta er).

  7. Svanfríður says:

    Jæja þá! Loksins loksins komst ég hingað inn og ég hafði svo gaman af lestrinum um fyrstu kynni ykkar Odds. Þessi skrif sýna það líka og sanna, að þrátt fyrir kynslóðabil milli fólks, þá breytumst við harla lítið. Við að sjá þann sem okkur líst á, þá fáum við í magann, við trúum ekki að við séum þær sem hann vill vera með os.frv… yndislegt:) Ég hlakka til að lesa meira:) TIl hamingju með nýju síðuna! Kv.Svanfríður.

  8. Ragna says:

    Þakka þér fyrir Svanfríður mín. Ég er svo alsæl með að vera búin að fá þessa síðu og ætla að reyna að vera dugleg að láta hana ekki drabbast niður. Já þessar tilfinningar ástfangna fólksins eru eins á öllum tímum, en næst ætla ég að skrifa um fyrsta búskapinn okkar og það er frábrugðið því sem er í dag.

Skildu eftir svar við Svanfríður Hætta við svar