Efni:
150 gr.Sykur
250 gr. Sýróp
½ tsk. Pipar
2 tsk. Engifer2 tsk. Kanill
½ tsk. Negull
125 gr. Smjör
1 egg
2 tsk. Bökunarsódi
10 – 12 dl. Hveiti
Sykurbráðin:
4 dl. Flórsykur
1 – 1 ½ eggjahvíta.
Hrært vel saman ásamt matarlit.
Sprauta á, t.d. með sprautum úr apotekinu eða úr kramarhúsum.
|
Aðferð:
Suðan látin koma upp á sykri, sírópi og kryddi. Bökunarsódanum hrært vel samanvið.Smjörið hrært saman við og eggið látið í.Seinast er hveitinu smám saman hrært saman við.Nú er hægt að hnoða deigið á borði og bæta e.t.v. aðeins við af hveiti.Ef geyma á deigið er plasti vafið þétt utanum og geymt á köldum stað.
Til minnis fyrir sjálfa mig:
Best er að nota litlu kökumótin hennar Karlottu því þá verða kökurnar litlar og sætar og passa í jóla- krukkuna.
Baka við ca. 175° á blæstri í ca. 7-9 mín. Fer eftir þykktinni á kökunum. |
Mjög gott húsráð:
Ef mæla á sýróp, strjúka þá með matarolíu innan ílátið sem mælt er í, þá festist sýrópið ekki við.