Það er hægt – Látlausu jólin mín.

Yfirskriftin er „Það er hægt“  –  Já það er hægt að halda jól án þess að allt sé sett á annan endann og stressa sig upp úr öllu valdi og það sem meira er, það eru bestu jólin.

Það var skrýtið að eiga að fara að halda jól í öðru landi.  Jólaskrautið var allt heima á Íslandi,  því við reyndum að taka ekki of mikið með okkur út.  Við leigðum lítið raðhús með húsgögnum svo að við höfðum ekkert af okkar dóti  í kringum okkur – það  yrði því ekkert eins og heima.  Auðvitað kom þó ekki annað til greina en að gera jólin okkar sem hátíðlegust.

Við fórum einn laugardaginn í desember á markað niðri í Woking og þar fundum við ódýrt jólaskraut og seríu til þess að setja á jólatré. Svo keyptum við lítið gervitré sem við sáum að kæmist fyrir á litla borðinu í horninu við gluggan. Guðbjörg var alsæl með þetta.  Það var mikið að gera hjá henni í leikskólanum því það var verið að æfa jólaleikrit þar sem hún var  í hlutverki og  tók þessu af mikilli alvöru. Á myndinni hérna fyrir neðan er hún til hægri frá okkur séð og sú sem er vinstra megin við hana er norsk stúlka, en þær eru báðar fjögurra ára þarna. (Myndina má stækka með því að smella á hana)

 

Við kviðum því að við myndum kveljast af heimþrá á þessum jólum, því við myndum engan hitta og ekkert fara. En þegar nær dró jólum urðum við í vandræðum með að raða niður heimboðunum fyrir jóladaginn og annan í jólum. Aðfangadagurinn þarna úti var eins og Þorláksmessa hérna heima og það kom ekki til greina annað en að vera heima og halda okkar jól á aðfangadagskvöld. Við fórum hinsvegar í jólaboð til enskra vina okkar á jóladag og á annan í jólum.

————————–

Aðfangadagurinn rann upp og  við fórum í göngutúr um morguninn því veðrið var svo gott og svo fór ég eftir hádegið að undirbúa fína hamborgarhrygginn sem mér hafði tekist að ná í, steikja rauðkálið og  tína til annað sem átti að hafa með steikinni. Hugurinn dvaldi alveg hjá fólkinu heima meðan ég dútlaði við matinn.  Guðbjörg litla skreytti jólatréð með pabba, og eitthvað fleira hengdu þau líka upp af skrauti í litlu stofunni okkar.

Við settumst svo þrjú að jólaborðinu i kllukkan sex um kvöldið og kveiktum á kertum.  Við vorum í okkar fínasta pússi og Guðbjörg var í kjól sem ég saumaði á hana upp úr kjól af sjálfri mér.  Það var voða skrítið að sitja bara þrjú til borðs, engar ömmur, afar eða aðrir sem við vorum vön að vera með á aðfangadagskvöldi og ekki gátum við hlustað á jólin hringd inn með kirkjuklukkunum og hlustað á jólamessuna í útvarpinu eins og við vorum vön. Við vorum ekki með plötuspilara svo við gátum ekki spilað nein jólalög. Í sjónvarpinu var bara venjuleg dagskrá og ekkert hátíðlegt þar að finna svo imbinn var hafður lokaður þetta kvöld. Við hugsuðum bara til  fólksins okkar heima og vorum með þeim í huganum.

Eftir matinn og fráganginn þá settumst við þrjú inn í stofu og sungum saman jólasálmana, nokkuð sem við höfðum aldrei gert áður. Síðan tókum við upp pakkana og lásum allar dásamlegu jólakveðjurnar að heiman. Það var yndislegt að fá bækur til að lesa. Svo hringdu foreldrar okkar til að óska okkur gleðilegra jóla og þá þurfti að reyna eftir bestu getu að halda aftur af tárunum. Frá því ég fæddist hafði ýmist ég verið hjá foreldrum mínum eða foreldrarnir hjá okkur á aðfangadagskvöld. Þetta var því í fyrsta skipti sem við héldum jól í sitt hvoru lagi og ég fann eitthvað svo til með þeim að vera bara tvö ein að borða jólamatinn.

Síðan var alveg dásamlegt að  skríða upp í rúm um kvöldið í nýjum náttfötum með jólabækur að heiman. það var ekki hægt að óska sér betra aðfangadagskvölds en við áttum þarna í allri fábreytninni, vitandi það að í kringum okkur var enginn að halda jól nema við – það var svolítið sérstakt.

Ég segi nú alveg eins og er, að í minningunni finnst mér þessi látlausu jól okkar þarna á erlendri grundu alltaf svo einstök og við vorum svo mikið í nánd við sjálf jólin og við hvert annað án allrar utanaðkomandi streitu og prjáls.
Það liggur við að ég fái tár í augun þegar ég rifja þetta upp.

Myndin hérna fyrir neðan er tekin þetta aðfangadagskvöld.  Það er hægt að stækka hana með því að smella á hana.

Mér finnst gott, í öllu stressinu og auglýsingaflóðinu sem hefur verið  að drekkja okkur undanfarið, að fara aftur í tímann og rifja upp hvað jólin í Englandi forðum, sem voru þau allra látlausustu í mínu lífi hingað til, voru yndisleg  einmitt í sinni einföldustu mynd.

Reynum að láta stressið ekki fara alveg með okkur þó svo að okkur hafi kannski ekki tekist að hafa allt eins og við hefðum helst kosið.  Já, Jólin koma með sinn fallega boðskap hvort sem við höfum lokið því sem við hugðumst gera fyrir Jól eða ekki og við skulum njóta þess friðar sem þau færa okkur.  Hugsum til þeirra með þakklæti sem gerðu jólin okkar svo yndisleg en eru ekki lengur á meðal okkar.  Hugsum  til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna sjúkdóma, slysa  eða ástvinamissis. Leiðum líka hugann að því að þeir eru svo margir sem ekki hafa það eins gott og við sjálf og margir hafa ekki haft nægilegt fé til matarkaupa eða til þess að gefa sínum nánustu jólagjafir. Þeir eru án efa fleiri en okkur grunar bæði hér og á erlendis sem þannig er ástatt um.

Mér kom þetta í hug núna þegar aðeins er tæp vika til jóla.

Umfram allt skulum við vera þakklát og njóta  þess kærleika sem Jólin bera með sér.

This entry was posted in Árin í Englandi.. Bookmark the permalink.

8 Responses to Það er hægt – Látlausu jólin mín.

  1. Guðbjörg Oddsdóttir says:

    Ég fór sko alveg að skæla við að rifja þetta upp :0)
    Vá hvað ég man mikið eftir að hafa fengið dúkkuvagninn, ég man enn í dag hvað ég varð glöð!
    Takk fyrir yndislegan pistil mamma mín :0)

    Kv

    Guðbjörg

  2. Linda says:

    Alveg yndisleg lesning Ragna.. Og ekki laust við að ég viti vel hvað þú ert að tala um. Jólin eru tími samveru fjölskyldunnar og því var oft klökt hjartað þegar ég var að heiman og hugsaði til fjölskyldunnar, sem eyddu saman jólunum. Manni finnst manni pínulítið einn og yfirgefinn. Ég kemst þó ekki nálægt þeirri einveru sem þið upplifðuð, því í dag höfum við jú internetið, svo ég seinkaði jólunum um 1 klukkustund, til að geta hlustað á bjöllurnar hringja jólin inn, og svo var skype notað við jólaborðhaldið.
    Það hefst auðvitað eins og allt sem maður ætlar sér, en ég er mikið glöð að vera komin heim og get eytt jólunum með fjölskyldunni núna. Án internetsins 😉

  3. Ragna says:

    Takk sömu leiðis Guðbjörg mín. Þetta var dásamlegur tími hjá okkur. það er líka svo gaman að þú sem varst bara fjögurra ára skulir enn muna eftir öllu fólkinu þarna úti og verunni okkar þarna.

  4. Ragna says:

    Já Linda mín, ég gleðst fyrir þína hönd að vera komin heim til Íslands því ekkert jafnast auðvitað á við það að vera með öllum sínum nánustu. Þó svo að maður geti vissulega skapað sér hamingju hvar sem maður er þá er jú þrátt fyri alla samskiptatæknina sem er í boði í dag, best að vera með sínum nánustu og geta knúsað þá.
    Á þeim tíma sem við vorum þarna úti, þá hrökk maður í kút ef það var hringt og þorði varla að svara af hræðslu við að kannski hefði eitthvað komið fyrir heima. Það var nefnilega svo dýrt að hringja milli landa að það var bara gert á afmælum og jólum.

  5. Sigurrós says:

    Það var yndislegt að lesa þessa ljúfu frásögn af jólunum ykkar úti.
    Það er svo sannarlega ekki auglýsingaflóðið eða stressið sem skapa jólin, svo mikið er víst!

  6. Ragna says:

    Nei, satt segirðu Sigurrós mín. Hins vegar var bara allt svo miklu afslappaðra í sambandi við jólin þarna úti og hvorki staðið í hreingerningum, jólabakstri eða öðru sem hér þótti ómissandi.

  7. Elsku Ragna, takk fyrir að vera eins yndisleg og þú ert. Takk fyrir góða kynningu og ég óska þér og þínum gleði og farsældar.

  8. Katla says:

    Gleðin og hamingjan skín eins og gull úr andliti Guðbjargar. Yndislegt : )

Skildu eftir svar við Guðlaug Hestnes Hætta við svar