Fiskisúpa m/grænmeti

Fiskisúpa

Efni:

6 ? 800 gr. Lúða eða ýsa.

7 dl. Mysa

5 dl. Vatn

½ – 1 tsk. Salt

100 gr. Sellerí

100 gr. Blaðlaukur

4 gulrætur

1 laukur

70 gr. Smjör

1 tsk. Karrí

2 msk. hveiti

¼ tsk. ?season all?

1 ? 1 ½ tsk. Fiskikraftur

1 peli rjómi

3 eggjarauður

200 gr. Rækjur.

Borið fram með volgu smábrauði og smjöri.

Aðferð:

Fiskurinn soðinn í blöndu af mysu, vatni og salti (ath. að ofsjóða ekki). Sellerí og laukur saxað og blað-laukurinn skorinn í þunnar sneiðar. Grænmetið látið krauma í smjörinu í u.þ.b. 5 mín. í potti. Karríi bætt í. Skera gulræturnar í þunnar sneiðar og snöggsjóða þær. Láta hveitið yfir grænmetið í pottinum og væta í með 1 lítra af fiskisoði.

Bragðbæta með fiskikrafti og season all, rjóminn látinn útí og hitað að suðu. Eggjarauðurnar hrærðar í skál og súpunni jafnað út í. Látið aftur í pottinn og rækjurnar,gulræturnar og beinlausi fiskurinn settur í. Nú má alls ekki sjóða í pottinum.