Kjúklingur í rjómatómatsósu

Kjúklingur í rjómatómatsósu

Með sveppum og lauk

Efni:

1 – 2 kjúklingar

100 gr. Smjör

salt, pipar

2 ? 3 laukar

150 gr. Sveppir

2 dl. Rjómi

2 msk. tómatkraftur (paste)

2 ? 3 dl. Rifinn ostur

½ – 1 tsk. Þurrkuð paprika

Þessi réttur er alltaf jafn lúffengur

Bera soðin hrísgrjón með og ef vill, gott hrásalat.

Aðferð:

Kjúklingarnir þvegnir vel og hlutaðir sundur. Mjög gott að úrbeina allt nema leggina.

Kjötið brúnað á pönnu í smjöri og sett í eldtraust mót. Saxaður laukur og sveppir látnir krauma í smjöri og síðan dreift yfir kjúklingana. Salti og pipar stráð yfir. Rjóma og tómatkrafti er blandað saman og hellt yfir. Bakað í miðjum ofni við góðan hita í u.þ.b. ½ tíma. Þá er rifnum osti og papriku stráð yfir mótið og bakað áfram í ca. 15 mínútur.