Rúgbrauð Önnu í Dölunum.

Rúgbrauð Önnu í Dölunum. Þetta er stór uppskrift. 

6 bollar rúgmjöl  (1 kg)
3 bollar heilhveiti
4 ½ tsk. Matarsódi
500 gr. Sýróp
1 ½ ltr. súrmjólk
2 msk. Hunang

Deigið er hrært með sleif og bakað í steikarpotti með lokinu á. Ef uppskriftin er tvöfölduð (eins og Anna bakar hana) þá passar hún í stóru svörtu steikarpottana, en annars í þá litlu. Það verður bara að vera ílát með loki eða álpappír þétt yfir.

Þetta bakast síðan í 6 ½ klukkutíma við 100°C.
Þetta er að öðrum brauðum ólöstuðum besta rúgbrauð sem ég hef smakkað.