Efni: 100 gr. Smjör ½ ltr. Mjólk 1 pk. Þurrger 60 gr. Sykur ½ tsk. Salt 800 gr. Hveiti Fylling: Smurostur m/ skinku (skinkumyrja) Egg til að smyrja með (eitt á að duga) og birkifræ. Það er mjög gott að eiga nóg af þessum hornum, ekki síst um jól J
|
Aðferð: Velgja mjólk og smjör í ca. 37° Ég set hveitið í hnoðskál, set sykurinn og saltið ofaná í skálinni og strái síðan þurrgerinu yfir. Síðan helli ég 37°heitri mjólkinni með brædda smjörinu yfir það sem komið er í skálina. Lokið sett á strax og þetta hrist vel saman. (Mér finnst deigið alltaf mátulegt svona, en ef það skyldi vera of þurrt þá má bæta aðeins volgri mjólk í það en gera það mjög varlega svo það verði ekki of blautt.) Deigið er látið hefast í skálinni sem er látin standa í eldhúsvaskinum í heitu vatni í ca. 30 mín. eða þar til lokið lyftist. Næst er deigið skafið með sleikju innan úr skálinni og hnoðað mjög létt saman, síðan er því skipt í 8 hluta. Hver hlutur er síðan flattur út í stærð B á Tupperwaredúk. Smurostur settur með skeið á hvern part (8 partar) og rúllað upp. Smurt með eggi og birki stráð ofaná. Bakað í ca. 11 mínútur miðað við 2 plötur í einu á blæstri. Hitinn í 180°
|
Uppskriftir
Orðabelgur
- koparhylki hrærivél um Vangaveltur um fullkomleikann.
- Kjartan J Hauksson um Vestfjarðarferð 3. hluti.
- ERICA um Górillan í sveitinni – gömul minning.
- magga um Önd í appelsínusósu – Pússlað úr ýmsum áttum – mjög gott.
- evaevahauksdottir um Gamla góða bloggið mitt vanrækt.
Flokkar
- Árin í Englandi. (2)
- Fjölskyldustundir. (2)
- Gamla ástarsagan og ýmislegt henni tengt.. (10)
- Helstu fréttir. (35)
- Hugleiðingar mínar (29)
- Sárar minningar (1)
- Ýmislegt (130)
september 2023 M Þ M F F L S « sep 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30