Ofnbrauð m/sveppajafningi.

 

Þetta ofnbrauð hefur verið

í uppáhaldi í saumaklúbbnum í 40 ár.

 

 

 

Aðferð:

 

 

 

 

500 gr. sveppir

75 gr. Jurta smjörlíki (Smjörvi eða álíka)

3 dl. rjómi

4 tsk. kartöflumjöl

1 tsk. salt

1 tsk. sítrónusafi.

Einnig þarf:

Rifinn ost

skinku eða hamborgarhryggsbita

Franskbrauð eða gróft brauð – eftir smekk.

Skinka eða hamborgarhryggur í smábitum eða lengjum.

 

Rifinn ostur

 

 

 

Jurta og rjómi soðið saman, niðursneiddum sveppum ásamt salti og sítrónusafa bætt í og látið sjóða í 10 mínútur. Potturinn tekinn af og kartöflumjöl hrært með vatni, blandað samanvið.

Skera brauðið í teninga og setja það  í botninn á eldföstu móti.  Hella sveppajafninginn ofaná ásamt skinku eða hamborgarhryggsbitum.

Rifinn ostur settur yfir, Jurtabitum dreift hér og þar. (Ég sleppi oft þessum jurtabitum yfir þó það sé í uppskriftinni því flestir eru að draga úr fitu í mat og mér finnst nóg að hafa jafninginn með rjoma og smjöri í. )

Þetta dugar í eitt stórt eldfast form. Auðvelt er að stækka hlutfallslega uppskriftina að jukkinu. Hálf uppskrift í viðbót ætti að duga í tvö meðalstór form (svona 20x30cm).

Þetta er svona réttur eins og naglalsúpan, maður bætir við eftir þörfum og eftir því hvað hentar hverju sinni. 

Bakað við 175° þar til osturinn er gullinn og allt orðið gegnum heitt.

Réttinn má hafa tilbúinn nokkru áður og hita þá lengur.