Kanilkaka – þessi gamla góða.

 

Efni:  Aðferð:
250 gr sykur
250 gr smjör eða smjörlíki
2 egg
Þetta er hrært vel saman áður en þurrefnum er bætt við
250 gr hveiti
3-4 teskeiðar kanill
Deiginu er smurt þunnt á botn hringlaga tertuforms…þetta gera 5-6 lög, bakað við 180 gráður hita í stutta stund, u.þ.b. 5 mínútur eða ögn skemur.

Þeyttur rjómi er settur á milli laga og honum sprautað fagurlega á jaðrana.
Stundum hafðir súkkulaðispænir saman við rjómann.
Stundum er sett bráðið súkkulaði yfir efsta lagið.

Skildu eftir svar