Efni: 5 dl. Volgt vatn ½ dl. Hveitiklíð *1 1 dl. Sykur 2 msk. olía 1 tsk. Salt 2 ? 3 tsk. Muldar kardimommur 8 ? 10 dl. Hveiti 5 tsk. Þurrger (1 bréf) 1,5 dl. Rúsínur.
*1 Það er gott að blanda saman hveitiklíði og hveitikími en hafa magnið samtals um ½ dl.
Aðferðin er hér til hliðar en einnig má hrista þetta saman í hnoðskálinni og láta lyfta sér eins og venja er. Nota síðan bláa Tupperwarebikarinn til að móta bollurnar.
|
Aðferð: Í skál er sett vatn, hveitiklíð, sykur, olía, salt og kardimommur og blandað vel. Hluti af hveitinu, þurrgerið og rúsínurnar sett út í og hrært vel. Hveiti er bætt við þar til deigið er orðið hæfilega þykkt. Látið lyfta sér í skálinni á hlýjum stað í eina klukkustund. Hnoðað vel á hveitistráðu borði og hveiti bætt við ef þarf. Deginu er skipt í 4 parta og mótuð lengja úr hverjum parti sem síðan er skipt í 10 bita. Bollur mótaðar úr bitunum og raðað á bökunarplötu. Látið lyfta sér að nýju á hlýjum stað í 15 ? 20 mínútur. Bakað í miðjum ofni við 225°C í 15 mínútur.
|