Efni: | Aðferð: |
5 dl. Mjólk 4 tsk. Þurrger 2 egg1 dl. Skyr 1 msk. Salt150 gr. Smjör14 dl. Hveiti (840 gr.) 2 ½ dl. Spelt Gott er að setja smurost, t.d. skinkuost með teskeið inn í hvert horn. Einnig má setja rúsínur og kanel eða annað, t.d. pestó inn í hornin. Allt leyfilegt. Til að pensla: 1 – 2 egg3 msk. Birkifræ eða sesamfræ. |
Ég miða aðferðina við að hrista í hristiskál:Allt þurrefnið sett í hristiskálina – strá þurrgerinu efst. Hræra létt saman skyrinu, eggjunum og mjólkinni og hella yfir, ásamt léttbræddu smjörinu. Síðan er skálin hrist vel og vandlega. Deigið síðan skafið vel niður í skálina og henni lokað loftþétt aftur. Degið er nú látið hefast með því að láta skálina standa í heitu vatni í vaskinum og þegar lokið fer að losna upp þá er deigið full hefað. Degið er nú skafið úr skálinni, hnoðað létt saman og skipt í 4 hluta. Hver hlutur er flattur út í hring og síðan í 8 hluta. Ef á að nota spurost er hann settur með teskeið á breiðari endann á hverju stykki og síðan er byrjað að rúlla upp frá breiðari endanum og endað á þeim mjóa. Leggja eins og lítil tungl á bökunarplötu, pensla yfir með egginu og fræjunum og bakað í ca. 12 mínútur við 225°. |