Hér er aðeins tillaga að innihaldsefnum, en magn verður hver og einn að ákveða eftir stærð eldföstu formanna, smekk sínum og fjölda þeirra sem eiga að smakka dásemdina.
Í réttinn er tillaga um eftirfarandi:
Franskbrauð eða annað mjúkt brauð eftir smekk – hver sneið skorin í 4 parta eða fleiri – og sett í botninn á eldföstu formi.
Brokkolí – ágætt að kaupa þetta frosna.
Rauðar paprikur og gott að hafa gula líka.
Púrrulaukur
Sveppir
– Svo má auðvitað sleppa einhverju af þessu grænmeti og setja eitthvað allt annað í staðinn- Prufa sig bara áfram, því þannig verða nýir réttir til –
Grænmetið er allt skorið niður og léttsteikt á pönnu.
Baconskinka eða reykt skinka. Smátt skorin bætt við blönduna þegar pannan hefur verið tekin af hitanum.
1 Gullostur eða (Stóri dímon) (í eitt form af miðstærð) eða meira ef magn er mikið)
1 peli af rjóma eða matr.rjóma ( – ” – )
Þegar grænmetinu og skinkunni hefur verið dreift yfir brauðið í forminu er osturinn bræddur í rjómanum (ég nota matreiðslurjóma)
Síðan er ostablöndunni helt jafnt yfir og að lokum er gott að strá rifnum osti yfir.
Þetta er gott að hita í ca. 30 – 35 mínútur á 170°hita eða í 20 mínútur á 200°