Efni: 100 gr. Majónes 1 msk. chilisósa ½ tsk. Salt ¼ tsk. Paprikuduft 1 ½ msk. sítrónusafi ½ dl. Rjómi 250 gr. Frosið krabbakjöt frá Snæfiski. Einnig má bæta við öðrum skelfiski og e.t.v. rækjum 6 sneiðar franskbrauð eða heilhveitibrauð ½ dós niðursoðinn aspas aspassoð 3 eggjahvítur 75 gr. Rifinn ostur
|
Aðferð: Majonesi og Chilisósu hrært saman. Kryddað með salti, paprikudufti og sítrónusafa. Rjómanum blandað saman við. Krabbakjötið skorið í hæfilega bita og blandað í majónesblönduna. Skorpurnar skornar af brauðsneiðunum og brauðið rifið í smurt eldfast mót. Bleytt í brauðinu með dálitlu aspassoði. Aspasbitunum raðað ofan á brauðið og krabbablöndunni smurt ofaná. Eggjahvíturnar stífþeyttar og rifna ostinum blandað saman við og þessu smurt ofan á krabbablönduna. Bakað í 200°heitum ofni í 10 mín. |