Efni: 3 egg 1 peli rjómi ca. 1 bolli sykur ½ dós ávextir aðeins sítrónusafi 6 plötur matarlím
Þessi uppskrift er mjög góð sem eftirréttur og einnig tilvalin sem fylling í tertur. Hægt er að setja hvaða niðursoðna ávexti sem er.
|
Aðferð: Undirbúningurinn: Rjóminn þeyttur, eggjahvítur þeyttar. Matarlímið lagt í bleyti og brætt (í örbylgjuofni í aðeins örfáar sekúndur. Fylgjast vel með að límið bráðni, en verði ekki of lengi).
Samsetningin: 1) Sykur og eggjarauður þeytt vel saman. 2) Safanum af ávöxtunum blandað í. 3) Matarlíminu, sem nú á að vera við líkamshita, hellt varlega saman við. 4) ávextirnir látnir út í þegar blandan með líminu fer að þykkna aðeins. 5) Síðast er rjómanum og stífþeyttum eggjahvítunum blandað varlega samanvið.
|