800 gr. Ýsuflök 1 vænn laukur 6msk. Sweat relish 6 msk. Ananaskurl 2 tsk. Karrí Salt eftir smekk Rifinn ostur eftir smekk. Sósa: 4 msk. Smjörlíki 3 msk. Hveiti 3 dl. Mjólk 1 dl. Ananassafi Salta örlítið. |
Fiskurinn steiktur aðeins á pönnu, einnig laukurinn við lagan hita þar til hann er glær.. Kryddað með Karrí og sett í eldfast mót. Sweat relish og ananasinn sett yfir, saltað og uppbakaðri sósunni hellt yfir. Rifinn ostur eftir smekk stráð yfir í lokin. Bakað í 15. mínútur við 200°Borið fram með hrísgrjónum, og grænmetis eða ávaxtasalati og kartöflum ef vill. Snittubrauð er líka ágætt að hafa. Allt eftir smekk hvers og eins. |