Uppskriftin er fyrir fjóra Efni:
- 50 gr. smjör
- 1 laukur – saxaður smátt
- 1 stöngull sellerí – saxað smátt
- 1-2 gulrætur – saxaðar smátt
- 1 askja (250 gr.) rækjuostur
- 2 pelar kaffirjómi
- vatn eða mjólk
- 250 gr. rækjur
- 100 gr. hörpufiskur
- sletta af hvítvíni
- þeyttur rjómi
Krydd:
- 1 tsk. svartur pipar
- 2 tsk. karrý
- 2 tsk. túrmerik
- 2 tsk. Taasa masala (Pottagaldrar)
- 1 kubbur grænmetiskraftur
- Fersk steinselja
Aðferð: Steikið grænmetið í smjörinu þar til það verður mjúkt. Bætið kryddinu öðru en steinseljunni við og hrærið í eina mínútu. Passa verður að grænmetið brenni ekki. Rækjuosturinn og kaffirjómanum er bætt við. Látið suðuna koma upp og ef þetta er of þykkt þá þarf að þynna súpuna með mjólk eða vatni. Loks er fiskurinn og hvítvínið sett útí. Þegar búið er að setja súpuna á diska er sletta af þeyttum rjóma sett á diskinn og steinseljan þar ofan á. Meðlæti: Gott brauð – gróft eða hvítt. Allt grænmeti og krydd fæst í heilsuhorni Blómavals. Auk þess er gott úrval af góðu brauði til þar.
|