Fiskréttur, sem ég hef klippt út úr blaði.
Mælt er með því að nota það grænmeti sem finnst í ísskápnum.
2 ýsuflök |
Brauðið er skorið í teninga, sem eru ristaðir á pönnu með örlítilli ólífuolíu og smá hvítlauksdufti. Teningarnir settir neðst í eldfast mót. Næst er laukur og grænmeti saxað frekar smátt, brúnað á pönnu og smá púðursykri stráð yfir í restina. Osti og rjóma bætt út í og bakað upp. Fiskurinn er skorinn í litla bita og dreift jafnt yfir brauðteningana. Næst er rjómalagaða grænmetisjafningnum hellt yfir og ostsneiðarnar (eða rifinn ostur) sett ofaná. Bakað í ofni í ca. 20 mín. Borið fram með góðu hrásalati.t.d. rifnum rófum gulrótum o.fl. eftir smekk. |