Jóla-aspassúpan
25 gr. smjör 2 1/2 msk hveiti 1,5 lítri kjötsoð (vatn + 1-2 súputeningur) 1/4 dós aspas 2 eggjarauðurca 1/2 tsk salt 1-2 msk sherry
Aðferðin. 1. Smjörið brætt. 2. Hveitinu hrært út í og þynnt með heitu soðinu. 3. Aspassoðinu er blandað saman við. 4. Aspasinn er hafðu í 2-3 cm löngum bitum sem látnir eru út í súpuna eftir að hún hefur soðið í 3-5 mín. og er orðin kekkjalaus. (Ef ekki þá má hella henni gegnum sigti og síðan aftur í pottinn). 5. Eggjarauðurnar hrærðar vel í skál með saltinu. 6. Lítið í einu af súpunni er hrært saman við eggjarauðurnar. 7. Þegar u.þ.b. helmingur súpunnar hefur verið hrærður þannig saman við má setja úr skálinni út í pottinn en gæta þess að það sjóði alls ekki eftir það út af eggjarauðunum. 8. Sherryið sett út í. 9. Smakka sig áfram til að vita hvort þarf annan súputening eða meira af salti eða sherryi. |