Jólaísinn.
Efni: 4 eggjarauður 1 dl. Sykur ½ lítri rjómi. Kalúa líkjör Súkkulaðibitar eða spænir |
Aðferð: Eggjarauður og sykur þeytt saman Þeyttum rjómanum blandað samanvið Líkjör, súkkulaðibitum eða öðru blandað út í til bragðbætis. Fryst í Tupperwarehring. |
Marensterta út eggjahvítunum.
4 eggjahvítur 200 gr. Sykur Döðlur Súkkulaði |
Eggjahvítur og sykur stífþeytt og smátt skornar döðlur og súkkulaði-bitar látnir samanvið. Bakað á bökunarpappír við 150° í 45 mínútur. Kakan er sett saman með rjóma og gott að setja ananaskurl saman við rjómann. Eða aðra frísklega ávexti og kannski aðeins smátt brytjað súkkulaði. |