Efnið:
1 ? 2 kjúklingar í bitum 2 dl. Hunts barbecue sósa (Hunangs) ½ dl. Soya sósa ( má vera meira eða minna, eftir smekk) 1 dl. Apríkósusulta 100 gr. Púðursykur ( Ég hef minnkað aðeins púðursykurinn) 1 peli rjómi.
|
Aðferðin:
Efnið í sósuna sett í pott og hitað að suðu. Léttsteikja kjúklingabitana. ( Það má setja þá ósteikta í formið en betra er að steikja þá áður). Sett í eldfast form og sósunni hellt yfir.
Bakað við 200° í c.a. 60 mínútur.
Borið fram með hrísgrjónum og hrásalati |