Kjúklingasalat – einfalt og gott fyrir 5 – 6 manns.
6 litlar kjúklingabringur Hunts barbequesósa Krydd, hvítlaukssalt eða annað gott krydd.
Salat: 1 poki af ítölsku salatiCa. ¼ af salathaus2 avocado ½ gúrka1 box kirsuberjatómatar 1 box jarðarber Fetaostur – tæpl. Ein krukka ½ rauðlaukur – skorinn smátt 50 gr. Furuhnetur – ristaðar Tortillar flögur eða DorritosCa. 1/3 úr poka.
Sósan: Olía – gott að nota olíuna af fetaostinum. Balsamic edik Sinnep Sterkt Hlyn síróp 2 hvítlauksrif – marin.
|
Aðferð: 1. Grænmetið skorið niður og sett í skál. 2. Kjúklingur skorinn í litla bita – snöggsteiktur á pönnu. Barbeque sósu hellt yfir (bara lítið) og láta malla í smá tíma. Sósan látin leka af kjötinu. 3. Tortillas flögur muldar létt – settar yfir salatið. 4. Kjúklingurinn (volgur) og jarðarberin eru sett yfir salatið rétt áður en rétturinn er borinn fram.
|