12 þverskornar kótilettur (eða lambalundir sem er ekki lakara) Olía til steikingar Salt og pipar Hvítlauksduft. 6 dl. Rjómi (kaffirjómi ef vill) Paprikuduft Ferskir sveppir Rifinn ostur |
Kótiletturnar steiktar í olíu, kryddað með salti, pipar og hvítlauksdufti. Sett í eldfast mót, léttsteiktir sveppirnir yfir. Rjóma og paprikudufti blandað saman og hellt yfir réttinn í forminu. Rifinn ostur ofaná. Bakað í 200°heitum ofni í ca. 30 – 40 mín. Salat sem mælt er með: Sýrður rjómi, epli og bananar smátt skorið sykra aðeins. Soðin hrísgrjón og ef vill hvítlauksbrauð. |