300 gr. Smjör 400 gr. Sykur 4 egg 1 dl. Mjólk ½ dl. Appelsínusafi Rifinn börkur af 1 appelsínu 2 tsk. Lyftiduft 320 gr. Hveiti 2 tsk. Vaniullusykur eða dropar. 50 gr. Rifið dökkt súkkulaði.
KREMIÐ OFAN Á: 125 gr. Smjör 4 dl. Flórsykur (melis) 2 tsk. Vanillusykur100 gr. Hvítt súkkulaði ½ dl. Appelsínusafi og rifið hýði af 1 appelsínu.
|
Smjör og súkkulaði hrært saman þar til það er ljóst og létt. Eggjunum bætt í, einu í senn og hrært vel.Vökva og þurrefnum hrært í til skiptis og að lokum rifna appelsínuhýðið. Mælt með að baka í formi sem er 26cm x 36 cm. Hökkuðu súkkulaðinu stráð yfir degið og kakan síðan bökuð í miðjum ofni við 180°í ca. 40mín.
KREMIÐ: Smjöri, sykri, vanillusykri og appelsínudjús hrært vel saman. Súkkulaði brætt í vatnsbaði eða í örbylgjuofni og því síðan hrært vel í blönduna. Kremið smurt yfir kökuna og rifnum appelsínuberki stráð yfir. —– Okkur fannst þessi kaka alveg sérstaklega góð. Ég á eftir að prufa hvort það er ekki líka gott að baka þetta sem muffins.
|