3 – 4 afhýdd epli 7 stórir Tobleronetindar 100 gr. Konfektmarsipan, Deigið : 2 egg 2 dl. Sykur 2 dl. Hveiti 1 tsk. Lyftiduft. |
Eplin skorin smátt og sett í smurt eldfast form.Tobleronið brytjað niður og sett yfir eplin í forminu. Konfektmarsipanið rifið yfir. Deigið: Egg og sykur þeytt vel saman. Hveiti oglyftidufti hrært varlega saman við. Hellt yfir fyllinguna í forminu og sykri og kanil stráð yfir. Bakað við 180° í ca. 30 mín. Borið fram með rjóma eða ís. |